HSS
HSS

Fréttir

Einstakar myndir úr hjartaaðgerð Helga Einars
Fimmtudagur 24. júní 2004 kl. 13:26

Einstakar myndir úr hjartaaðgerð Helga Einars

„Mér líður bara alveg konunglega. Það er vel hugsað um mig hér og ég var reyndar að koma úr sturtu,“ sagði Helgi Einar Harðarson í samtali við Víkurfréttir í fyrradag, en Helgi liggur á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg eftir að hafa gengist undir hjartaskiptaaðgerð í annað sinn.

Hjartaskiptaaðgerðin var gerð á þriðjudaginn í síðustu viku, en einnig gekkst Helgi Einar undir nýrnaaðgerð og tóku aðgerðirnar um 12 klukkustundir samfleytt. „Ég vaknaði rúmum þremur tímum eftir aðgerðina og spjallaði aðeins við mömmu. Læknarnir hér eru alveg í skýjunum yfir því hvað þetta gengur allt vel,“ segir Helgi, en hann var aðeins í einn sólarhring á gjörgæsludeild eftir aðgerðina og fór þaðan á almenna deild.

Í Víkurfréttum sem komu út í morgun er viðtal við Helga Einar og einstakar myndir úr hjartaaðgerðinni sem Helgi gekkst undir á dögunum.

Myndin: Frá aðgerðinni á Helga Einari á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. VF-ljósmynd/ Ingi Ragnar Ingason.

Bílakjarninn
Bílakjarninn