Einn þreytir samræmt stúdentspróf við Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Einn nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur skráð sig í samræmt stúdentspróf í íslensku sem haldið verður í vor. Yfir landið allt hafa 520 framhaldsskólanemar skráð sig í prófið. Prófað verður úr námsefni kjarnaáfanga í íslensku. Þetta er í fyrsta sinn sem samræmt próf er haldið á framhaldsskólastiginu.