Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Einn kaupsamningur í síðustu viku
Miðvikudagur 3. mars 2010 kl. 09:17

Einn kaupsamningur í síðustu viku


Afar rólegt var á fasteignamarkaði síðustu vikuna í febrúar en þá var aðeins einum fasteignakaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum. Hann var um eign í fjölbýli og var upphæð samningsins 6,7 milljónir króna. Á sama tíma var 45 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, 6 á Akureyri og einum á Árborgarsvæðinu. Á síðustu 12 vikum hefur að meðaltali þremur fasteignakaupsamningum verið þinglýst í hverri viku á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í tölum Fasteignaskrár ríkisins.
--

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson