Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 16. júlí 2003 kl. 22:01

Einn heitasti dagur ársins

Óhætt er að fullyrða að dagurinn í dag er einhver heitasti dagur ársins. Í Reykjavík voru 19 stig klukkan þrjú og 22 stiga hiti á Þingvöllum og á Hjarðarlandi í Biskupstungum. Suðurnesjamenn fóru ekki varhluta af blíðunni og t.a.m. mældi blaðamaður Víkurfrétta 18°C á óopinberan en traustan hitamæli í Keflavík kl. 21:30 í kvöld.Sama veðri er spáð á morgun, samkvæmt því sem Siggi Sólargeisli, veðurfréttamaður á Stöð 2, sagði í kvöld.
Bílakjarninn
Bílakjarninn