Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Föstudagur 19. febrúar 1999 kl. 19:27

EINN GLÆSILEGASTI JEPPI Á LEIÐ TIL GRINDAVÍKUR:

EINN MEÐ ÖLLU! Daníel Ben Þorgeirsson málaraverktaki í Grindavík hefur fest kaup á einum glæsilegasta jeppa sem fluttur hefur verið til Íslands. Jeppinn er nú í vörslu Tollgæslunnar í Keflavík og bíður tollafgreiðslu. Með góðfúslegu leyfi frá Daníel og Tollgæslunni fengu Víkurfréttir - fyrstar fjölmiðla - að skoða bifreiðina á þriðjudaginn. Beint af færibandinu Bíllinn heitir Cadillac Escalade og er árgerð 1999. Að sögn Daníels Ben Þorgeirssonar er bíllinn sá fyrsti sinnar tegunar hér á landi og hann hefur jafnframt þær upplýsingar að þetta sé fyrsti bíllinn í Evrópu. „Hann er glænýr af færibandinu og hefur ekki enn verið kynntur í Evrópu“, sagði Daníel. Vél bílsins er 5,7 lítra overhead Valve, VORTEC 5700 V8. Hún skilar 255 hestöflum við 4600 snúninga og eyðslan er 13 lítrar við langkeyrslu en 16 lítrar í innanbæjarakstri. Þetta mun vera vinsælasti forstjórabíllinn í Ameríku í dag og það var ekki auðvelt fyrir Daníel að komast yfir eintak af bílnum. Mikill íburður Ekkert er til sparað í innréttingu bílsins. Þar er bæði að finna eðal leður og hágæða Zebrano viðarklæðningu. Sæti eru ekki bara klædd leðri, því það er einnig að finna á hurðaspjöldum og á stýri. Það er heldur ekkert verið að flækja litavalið á þessum jeppum. Fjórir litir eru í boði fyrir árgerð 1999. Það eru svartur, hvítur, silfur og vínrauður. Hljómflutningskerfi bílsins er einnig það flottasta sem til er hér á landi, að talið er. Fullkomin hljómflutningstæki tengd við fjölda Bose hátalara og hljómurinn svo tær að líkja má við lifandi tónleika. Það væri of langt mál að útskýra hljómkerfi bílsins mikið nánar en þó má geta þess að ef börnin í aftursætinu vilja ekki hlusta á það sama og foreldrarnir í framsætinu þá skella þau bara á sig Sony eyrnatólum og velja sína eigin útvarpsstöð eða geta hlustað á einn af sex geisladiskum í sérstökum geislaspilara fyrir aftursætisfarþega. Allur annar búnaður bílsins er meira og minna rafeindastýrður. Til dæmis er innbyggður bílskúrshurðaopnari í bílnum! Ætlar að eiga bílinn sjálfur! Daníel Ben hefur hugsað sér að eiga bílinn sjálfur, am.k. fyrst um sinn. Ef gott tilboð berst þá er hann falur. Þetta er ekki fyrsta glæsikerran sem Daníel flytur inn. Á síðasta ári flutti hann inn ríkulega búinn Grand Cherokee árg. 1999, sem mun hafa verið flottari en það besta sem Jöfur bauð uppá. Bónusfeðgar keyptu þann bíl af Daníel. En hvað kostar svo gripurinn? „Við skulum ekkert vera að segja frá því. Settu bara þrjú dollaramerki“, sagði Daníel og hló. Með nútímatækni fórum við inn á www.gm.com, fundum nýja bíla, völdum Cadillac og þar blasti við okkur Escalade. Eftir að hafa lesið um kosti bílsins var bara að kíkja á verðið og viti menn $ 46.525.- fyrir utan tolla! Eftir lauslega athugun á bílasölu fengum við út að bíllinn kostaði 7,6 milljónir kominn á götuna hér á landi!
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024