Einn bíður yfirheyrslu vegna ráns í Stapagrilli
Rannsókn á ráninu í Stapagrilli við Tjarnabraut í Innri-Njarðvík í gær miðar ágætlega. Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir að verið sé að fara yfir ábendingar um hugsanlega gerendur í málinu.
Einn bíður yfirheyrslu lögreglu að sögn Bjarneyjar, en ekki er víst að viðkomandi sé sá sem framdi ránið.