Einn besti framleiðsludagur ársins eftir að vinnsla hófst á ný
Ægir Sjávarfang er eitt fárra ef nokkurra fyrirtækja í Grindavík, sem hefur ekki orðið fyrir teljandi truflun vegna jarðhræringanna þann 10. nóvember. Flestir starfsmenn búa utan Grindavíkur, varla sér á húsnæði eða vélum og fyrirtækið náði einum besta framleiðsludegi sínum á árinu, eftir að vinnsla hófst á ný í byrjun desember.
Björn Sigtryggsson er framkvæmdastjóri Ægis Sjávarfangs, hann býr eins og flestir starfsmanna, ekki í Grindavík og var farinn úr bænum um fjögurleytið föstudaginn örlagaríka. „Það eru um 20 starfsmenn hjá okkur og einungis sex af þeim sem búa í Grindavík. Húsnæðið okkar skemmdist sáralítið, einstaka sprungur í veggjum svo við sluppum mjög vel. Ég kíkti strax á mánudeginum á skrifstofuna og á húsnæðið og sá að ástandið var gott. Þegar fyrirtækjum var svo hleypt inn í verðmætabjörgun, sóttum við birgðir og umbúðir fyrir líklega um 100 milljónir. Þessar birgðir voru allar seldar svo það var ekkert annað að gera en koma þeim í flug. Við sáum að ástandið á húsnæðinu og vélum var mjög gott svo við mátum stöðuna þannig að vera ekki að flytja vélar í burtu. Við erum búnir að vera á fullum afköstum í að verða á aðra viku og einn okkar stærsti framleiðsludagur á árinu, var tveimur eða þremur dögum eftir að við byrjuðum aftur þegar það var leyft. Við byrjum alltaf klukkan átta að vinna og þar sem stór meirihluti starfsfólksins hefur verið að koma utan Grindavíkur til vinnu, hefur ekki verið mikil breyting hjá okkur. Þar sem þetta hefur ekki haft teljandi áhrif á okkar starfsemi, lít ég framtíðina björtum augum. Önnur fyrirtæki búa ekki eins vel og því skil ég vel umræðuna sem hefur verið um að hleypa eigi fólki sem vinnur í Grindavík, sem fyrst inn í bæinn. Fólk sem er ekki með börn og vinnur hér, því fyrr sem því verður gert kleift að flytja hingað, því fyrr kemst allt atvinnulífið á sama stað. Það er mjög mikilvægt fyrir Grindavík. Ég vona að yfirvöld muni hugleiða þetta vel og í byrjun árs verði slakað á þessum höftum,“ sagði Björn.
