Einn af eigendum Twitter og forseti Íslands á Ásbrú í dag
Tveir kunnir bandarískir fjárfestar sem eiga stóra hluti í fyrirtækjum á borð við Twitter, Tumblr, Foursquare og Zynga (sem framleiðir m.a. Farmville-leikina) eru staddir hér á landi og taka þátt í ráðstefnu sem fram fer á Ásbrú í Reykjanesbæ í dag. Meðal ræðumanna er einnig forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson en hann hefur alla tíð sýnt uppbyggingunni á Ásbrú mikinn áhuga.
Ráðstefnan, sem nefnist Start-up Iceland, er skipulögð af hópi sjálfboðaliða undir forystu indverska fjárfestisins Bala Kamallakharan, en það er í gegnum persónuleg tengsl hans að þessir þekktu fjárfestar koma til landsins til að taka þátt í ráðstefnunni.
Brad Burnham er annar stofnenda fjárfestingafyrirtækisins Union Square Ventures sem sérhæfir sig í fjárfestingum í ungum netfyrirtækjum. Fyrirtæki hans var á meðal fyrstu fjárfestanna í samfélagsmiðlinum Twitter, sem tæplega 150 milljón manna nota í dag. Burnham situr einnig í stjórn örbloggsíðunnar Tumblr sem nýtur vaxandi vinsælda, meðal annars á Íslandi.
Í för með honum er annar kunnur bandarískur fjárfestir, Brad Feld. Feld er líklega þekktastur fyrir að hafa stofnað örfjárfestingarbúðirnar TechStars, en raunveruleikaþættir þar sem fylgst er með ungum frumkvöðlum taka þátt í búðunum hafa verið sýndir á sjónvarpsstöðinni Bloomberg. Brad Feld seldi eitt af fyrstu fyrirtækjunum sem hann fjárfesti í til Google og var síðan á meðal fyrstu fjárfestanna í leikjafyrirtækinu Zynga. En Zynga er þekkt fyrir Facebook-leiki eins og Farmville og Zynga-poker.
400 manns sitja ráðstefnuna og seldist upp á hana fyrir nokkru. Upphaflega stóð til að ráðstefnan yrði haldin í Hörpu en vegna erfiðleika við að finna styrktaraðila þá var hún færð á Ásbrú.
Ráðstefnan er hugsaður sem vettvangur til að kynnast því sem er að gerast í frumkvöðlafræðum, tækni og viðskiptum í dag og mynda tengsl við innlenda og erlenda frumkvöðla og fjárfesta. Markmið skipuleggjendanna er að gera Startup Iceland ráðstefnuna að árlegum viðburði á Íslandi (ekki ósvipað Icelandic Airwaves) og fá áhrifamikla fjárfesta og frumkvöðla í tæknigeiranum til að koma til Íslands og ræða saman um það nýjasta sem er að gerast í þessum heimi.
Á efstu myndinni má sjá Ólaf Ragnar Grímsson á tali við Kjartan Þ. Eiríksson, framkvæmdastjóra Kadeco, nú í morgun en á myndinni að neðan er Brad Burnham á tali við Bala Kamallakharan sem stofnaði til Startup Iceland. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
-----
Helstu ræðumenn ráðstefnunni verða :
• Ólafur Ragnar Grímsson, His Excellency, The President of Iceland
• Brad Burnham, Founder, Union Square Ventures og fyrsti fjárfestinn í Twitter og stjórnarmaður í Tumblr
• Brad Feld, MP Foundry Group, fjárfestir í Zynga sem er framleiðandi Farmville
• Gunnar Hólmsteinn, CEO, CLARA
• Eirikur Hrafnsson, CEO, GreenQloud
• Rebeca Hwang, CEO, younoodle.com
• Hilmar B. Janusson, EVP of R&D, Ossur
• Hilmir Ingi Jonsson, CEO, Remake Electric
• Rebecca Kantar, Founder & CEO, BrightCo.
• Isaac Kato, CFO, Verne Global
• Alison MacNeil, CEO, GogoYoko
• Hilmar Veigar Pétursson, CEO, CCP
• Sarah Prevette, Founder & CEO, Sprouter.com and BetaKit
• Rakel Sölvadóttir, Founder, Skema
• Helga Valfells, MD, NSA, the New Venture Fund of Iceland
• Matt Wilson, Co-founder, Under30CEO
• Ted Zoller, Kauffman Foundation Senior Fellow