Einn að flýta sér á Garðvegi

Í gærkvöldi, kl. 22:16 var ökumaður bifreiðar kærður fyrir of hraðan akstur á Garðvegi þar sem hann var mældur á 136 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.
Rétt fyrir miðnættið var einn ökumaður kærður fyrir að nota ekki bílbelti og fyrir að vera ekki með ökuskírteini sitt meðferðis við aksturinn.