Bygg
Bygg

Fréttir

Einkaþota lenti með bilaðan mótor í Keflavík
Föstudagur 17. desember 2010 kl. 10:05

Einkaþota lenti með bilaðan mótor í Keflavík

Gulfstream einkaþota, sem var að koma frá Skotlandi, tilkynnti um vandræði skömmu fyrir miðnætti í nótt, þar sem vélin hafði misst afl á öðrum hreyfli. Vélin lenti svo á einum hreyfli á Keflavíkurflugvelli um kl. 1 í nótt. Sex menn voru um borð í vélinni. Lendingin gekk áfallalaust.

Björgunaraðilar voru í viðbragðsstöðu en aðstoð var afturkölluð þegar ljóst var að vélin lenti án vandræða.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Flugvélin var á leið frá Skotlandi til Los Angeles. Þegar hún var komin vestur undir Grænlands missti annar hreyfillinn afl. Þetta var rétt fyrir miðnætti. Vélin snéri því við til Keflavíkur og lenti þar um klukkutíma síðar. Lendingin gekk vel. Bæði slökkvilið og sjúkraflutningamenn voru í viðbragðsstöðu vegna bilunarinnar. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út, segir í frétt á vef Morgunblaðsins.

Mynd: Gulfstream einkaþotan við komuna til Keflavíkurflugvallar í nótt. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi