Einhver væta næstu daga
Veðurspá fyrir Faxaflóasvæðið næsta sólarhringinn: Suðaustan 5-13 m/s og skúrir með morgninum, hvassast á útnesjum. Hægari og þurrt að kalla í kvöld. Austan 8-13 og dálítil rigning öðru hverju á morgun. Hiti 8 til 12 stig, en 10 til 16 stig á morgun.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Suðaustan 5-10 m/s og skúrir með morgninum. Hægari og þurrt að kalla í kvöld. Austan 8-13 og dálítil rigning öðru hverju á morgun. Hiti 8 til 11 stig, en 11 til 14 stig á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Austan 10-18 m/s, hvassast syðst. Talsverð rigning suðaustanlands, en dálítil öðru hverju annars staðar. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast vestanlands.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fremur milda austlæga átt með vætu, einkum austanlands.