Einbýlishús á fyrstu lóð sameinaðs sveitarfélags
— Fyrsti lóðarleigusamningurinn undirritaður
	Mikil uppbygging á sér stað bæði í Garði og Sandgerði þessi misserin og fjölgar íbúum ört, segir á vefsíðu sameinaðs sveitarfélags. 
	Fyrsti lóðarleigusamningur Sameinaðs sveitarfélags Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs var undirritaður þann 9. júlí um lóðina Breiðhól 1 í Sandgerði. Lóðarhafar eru Hafsteinn Friðriksson og Kolbrún Ásgeirsdóttir sem hyggjast reisa þar einbýlishús. 
				
	
				

 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				