Ein milljón í gjöf og jólabingó
Kvenfélag Grindavíkur afhendi sóknarnefnd Grindavíkurkirkju eina milljón að gjöf á dögunum en endurbætur á Grindavíkurkirkju standa nú yfir og því kemur gjöfin sér mjög vel.
Kvenfélag Grindavíkur er einkar duglegt að safna fjármunum fyrir þörf málefni en hvernig fara grindvísku konurnar að því að safna þessum fjármunum? T.d. með jólabingói sem einmitt fer fram núna á sunnudag, 13. nóvember í Grunnskóla Grindavíkur. Börnin kl. 14 og fullorðnir kl. 20.
Kvenfélag Grindavíkur vill koma þakklæti á framfæri til þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem gefa vinninga.
Grindvíkingar og aðrir eru hvattir til að mæta og taka þátt.