Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

  • Eimskip hefur reglulega flutninga um Helguvíkurhöfn
    Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafnar framan við Lagarfoss í Helguvíkurhöfn á þriðjudagskvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
  • Eimskip hefur reglulega flutninga um Helguvíkurhöfn
    Fyrstu gámarnir koma frá borði. Þeir eru ætlaðir afurðum kísilvers United Silicon.
Þriðjudagur 15. nóvember 2016 kl. 09:10

Eimskip hefur reglulega flutninga um Helguvíkurhöfn

- Tekið á móti Lagarfossi með rjómatertu

Lagarfoss, nýjasta skip Eimskipa, kom í sína fyrstu ferð til Helguvíkurhafnar seint á þriðjudagskvöld í síðustu viku með vörugáma. Gámarnir eru fyrir afurðir úr kísilverksmiðju United Silicon. Þetta eru ákveðin tímamót hjá Helguvíkurhöfn því núna hefjast reglubundnar siglingar hjá Eimskip um höfnina. Við þetta tækifæri mættu þeir Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri um borð í Lagarfoss með tertu og færðu skipstjóranum, Magnúsi Harðarsyni.
„Við vonumst til þess að þegar Eimskip verður farið að sigla hingað reglulega að þá verði jafnframt aukning í öðrum flutningi á þeirra vegum, hvort sem það er innflutningur eða útflutningur og við munum hafa aðstöðu til að taka á móti því þegar við verðum komin lengra í þessu uppbyggingarferli,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, í samtali við Víkurfréttir.

Að nýta Helguvíkurhöfn sem inn- og útflutningshöfn fyrir Suðurnes í stað Reykjavíkur mun minnka mikið álag til að mynda á Reykjanesbraut. Halldór Karl segir að með því að Eimskip setji Helguvíkurhöfn inn í leiðakerfi sitt sé jafnframt verið að efla Helguvíkurhöfn eins og hægt er.

Eimskip er með samning við United Silicon um allan útflutning frá verksmiðjunni í Helguvík, ásamt allri affermingu innflutnings. Til að takast á við það verkefni verður nýr 100 tonna krani staðsettur í Helguvík frá því snemma á næsta ári. Kraninn er bæði með góðum armi og einnig krabba til að takast á við verkefni á hafnarbakkanum.

Til að byrja með verður gámavöllur á afskipunarkanti Helguvíkurhafnar en til framtíðar verður gámavöllur við nýjan viðlegukant í suðurhluta hafnarinnar. Núverðandi viðlegukantur í Helguvík er 150 metra langur en verður orðinn 310 metrar þegar lengingu hans er lokið. Útskipunarkanturinn í suðurendanum verður 135 metrar til að byrja með en verður með möguleika á tvöföldun í framtíðinni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024