Eignir Litla leikfélagsins verða Menningarsjóður Suðurnesjabæjar
Samkomulag á milli Suðurnesjabæjar og Litla leikfélagsins um stofnun Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar var undirritað í vikunni.
Tilurð samkomulagsins er að Litla leikfélagið, sem var starfandi í Garði, hefur hætt starfsemi sinni og var ósk félagsins að fjármagn í eigu þess renni til menningarmála í Suðurnesjabæ.
Samkomulagið var kynnt bæjarráði í síðustu viku þar sem bæjarráð fól bæjarstjóra að móta reglur fyrir sjóðinn.
Sjóðnum er ætlað að efla lista- og menningarlíf í Suðurnesjabæ og verður hægt að sækja um í sjóðinn eftir ákveðnum reglum.
Gert er ráð fyrir að úthlutun styrkja verði í höndum ferða-, safna- og menningarráðs en reglur um sjóðinn verða kynntar nánar þegar þær hafa verið samþykktar af bæjarstjórn, segir á vef Suðurnesjabæjar.