Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Eignir fyrir 11,5 milljarða seldar á Ásbrú
Föstudagur 8. apríl 2016 kl. 13:30

Eignir fyrir 11,5 milljarða seldar á Ásbrú

- Vilja ágóðann til svæðisins

Eignir á Ásbrú, gamla varnarsvæðinu, fyrir 11,5 milljarða hafa nú þegar verið seldar. Það eru um 60 prósent húsnæðis á svæðinu, í fermetrum talið. Fasteignamat þeirra eigna sem á eftir að selja er um 7,5 milljarðar. Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á þriðjudag lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fram bókun þess efnis að gerð verði krafa til ríkisins um að stórum hluta söluverðmætis eigna á Ásbrú verði varið til uppbyggingar á nærþjónustu á svæðinu. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur óskað eftir afstöðu Reykjanesbæjar til sölu á eignum á Ásbrúarsvæðinu.


Að sögn Kjartans Þórs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, á nú eftir að selja um 300 einingar af þeim 900 fjölskylduíbúðum sem eru á Ásbrú og um 300 af þeim 1100 einstaklingsíbúðar/-herbergja einingum sem þar eru. „Einnig er nokkuð eftir af verslunar-, þjónustu- og iðnaðarhúsnæði,“ segir hann. Allir kaupendur íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á Ásbrú hafa verið leigufélög. Kjartan segir áætlanir Kadeco um mótun samfélags á Ásbrú hafa gengið eftir og að miðað við ástand á fasteignamarkaði undangenginna ára sé allt á áætlun. Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, er í eigu ríkisins og segir Kjartan Kadeco hafa skilning á afstöðu þeirra sem vilja að meirihluti fjármagns af sölu eigna á Ásbrú verði eftir á svæðinu en að á endanum verði það eiganda fjármunanna, það er ríkisins, að ákveða hvernig þeim verði varið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Eftirfarandi er bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 5. apríl:


Við brotthvarf bandaríska varnarliðsins haustið 2006 stofnaði ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. og fól því að annast umsýslu fasteigna ríkisins á svæðinu og önnur verkefni sem tengjast framtíðarþróun þess.


Við höfum séð svæðið þróast mikið í kringum Keili, frumkvöðlasetrið og gagnaver svo eitthvað sé nefnt og nú er svo komið að mikið af íbúðahúsnæðinu eru selt. Mikill áhugi er meðal fjárfesta og fyrirtækja í flugtengdum rekstri að nýta enn meira af því húsnæði sem eftir er. Ásbrú er óðum að festa sig í sessi sem eitt af stærri hverfum Reykjanesbæjar og er löngu tímabært að við lítum til þess hvernig við sem sveitarfélag munum þjónusta og þróa þetta hverfi til framtíðar.


Í bréfi Fjármála- og efnahagsráðuneytisins er farið fram á afstöðu Reykjanesbæjar til sölu á eigna á Ásbrúarsvæðinu. Við Sjálfstæðismenn gerum þá kröfu til ríkisins að stórum hluta söluverðmætis þessara eigna verið varið til að byggja upp nærþjónustuna á svæðinu. Reykjanesbær hefur byggt upp grunnskóla og tvo leikskóla á þessu svæði með tilheyrandi kostnaði og taka verður tillit til þessa þegar fjármunum sem myndast í Þróunarfélaginu verður úthlutað.