Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Eignaumsjón semur við HS Orku um afsláttarkjör á raforku
Jóhann Snorri Sigurbergsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá HS Orku og Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, handsala samkomulag um raforkuviðskipti.
Fimmtudagur 23. nóvember 2017 kl. 10:06

Eignaumsjón semur við HS Orku um afsláttarkjör á raforku

Eignaumsjón og HS Orka hafa gert með sér samkomulag um raforkuviðskipti sem skilar viðskiptavinum Eignaumsjónar föstum afslætti af smásöluverði við kaup á raforku frá HS Orku. Samningurinn, sem hefur þegar tekið gildi, nær til raforkunotkunar í sameignum allra húsfélaga sem nýta sér þjónustu Eignaumsjónar. Jafnframt geta nýtt sér þessi afsláttarkjör eigendur íbúða eða eignarhluta í fjöleignahúsum, atvinnuhúsum og öðrum fasteignum sem eru í viðskiptum við Eignaumsjón.

Afsláttarkjör samkomulagsins milli Eignaumsjónar og HS Orku eru í krafti fjöldans en Eignaumsjón annast rekstur um 400 húsfélaga, rekstrarfélaga og atvinnuhúsnæðis, með það að markmiði að ná fram sem mestri hagkvæmni í rekstri þeirra.

Public deli
Public deli

Sem dæmi um ávinning af samkomulaginu er stórt húsfélag (174 íbúðir) í nýlegu húsi að spara sér um 250.000 krónur á ársgrundvelli frá því sem áður var, við kaup á rafmagni vegna sameignar húsfélagsins. Fyrir millistórt húsfélag (55 íbúðir) í nýlegu húsi skilar samningurinn um 100.000 króna sparnaði á ári við kaup á rafmagni vegna sameignar húsfélagsins.

Eigendur einstakra íbúða eða eigna sem tilheyra húsfélagi eða atvinnuhúsnæði sem er í þjónustu hjá Eignaumsjón, alls um 9.300 íbúðir/eignir, geta einnig orðið þátttakendur í þessu samkomulagi félaganna. Þeim sem það kjósa stendur til boða að fá sömu afsláttarkjör á rafmagni til eigin nota hjá HS Orku, svo lengi sem viðkomandi húsfélag sem þeir tilheyra er í þjónustu hjá Eignaumsjón, segir í tilkynningu frá félögunum.