Eignaspjöll unnin víða í Keflavík og Njarðvík
Tilkynnt hefur verið um nokkur eignaspjöll til lögreglunnar í Keflavík í dag. Rúður voru brotnar í tveimur bílum við Heiðarberg, eins og greint var frá hér á síðunni í morgun. Þá voru rúður brotnar í bílum við Miðgarð og Kirkjuveg í Keflavík og við Bakkastíg og Iðjustíg í Njarðvík.Ekki er vitað hverjir þarna voru að verki og óskar lögreglan upplýsinga, ef einhverjir hafa vitneskju í málunum.