HSS
HSS

Fréttir

Eignarhaldsfélag Suðurnesja ræðir 150 milljónir til atvinnumála síðdegis
Fimmtudagur 24. september 2009 kl. 16:35

Eignarhaldsfélag Suðurnesja ræðir 150 milljónir til atvinnumála síðdegis

Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja hefst nú síðdegis í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja að Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Eignarhaldsfélag Suðurnesja mun verja 150 milljónum króna til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum, samkvæmt tillögu fráfarandi stjórnar félagsins, sem lögð verður fram á aðalfundinum.

Í tillögunni segir að stjórn félagsins leggi til við hluthafafund að félagið ráðstafi allt að 150 milljónum af lausafé félagsins til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum, með veitingu lána, hlutafjárkaupum eða styrkjum, samkvæmt nánari reglum sem stjórn félagsins setur sér

Ekki er reiknað með öðru en hluthafafundur samþykki tillöguna og ný stjórn sem kjörin verður á aðalfundinum geti strax í framhaldi auglýst eftir umsóknum til styrkingar atvinnulífinu á svæðinu og verkefnum sem skapað geta ný störf, segir Böðvar Jónsson formaður félagsins, í tilkynningu sem hann sendi út í dag fyrir hönd félagsins.

Eignarhaldsfélag Suðurnesja er í 70% eigu ríkisins og Byggðastofnunar, 20% í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og 10% í eigu Lífeyrissjóðsins Festu og annarra fagfjárfesta.