Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Eiginkona fórnarlambs segir dóm of vægan
Mánudagur 19. júlí 2010 kl. 15:45

Eiginkona fórnarlambs segir dóm of vægan

Eiginkona mannsins sem lést á Grindavíkurvegi í árekstri við drukkinn ökumann sem keyrði á vitlausum vegarhelmingi gagnrýnir dóminn og segir hann allt of vægan. Ökumaðurinn, sem var ofurölvi, fékk sex mánaða dóm á föstudaginn þar af fjóra mánuði skilorðsbundna. Þetta kemur fram á Vísi.is í dag.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Mér finnst þetta bara skandall. Það er allt of vægt tekið á þessum málum. Fólk er að fá þyngri refsingar fyrir að stela úr búð og það er ekki réttlátt,“ segir eiginkona mannsins sem lést í viðtali við Vísi. Í dómnum kemur fram að drukkni ökumaðurinn mældist með rúm 3 prómíll af alkahóli í blóðinu. „Að keyra undir slíkum áhrifum er eins og að labba inn á kaffihús og hleypa skoti úr byssu með lokuð augun. Það er bara mín skoðun. Þetta er mannsmorð.“

Dómurinn mat það til refsilækkunar að ökumaðurinn hefði farið í meðferð og gengi nú sporin. Fjórir mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir og eru líkur á að þá tvo mánuði sem eftir standa geti hann afplánað í formi samfélagsþjónustu. Þá væri fangelsisrefsingin fyrir manndráp af gáleysi engin.

„Hann mun aldrei sitja af sér þessa tvo mánuði. Og ég hef enga leið til að knýja málið áfram. Mín réttindi eru engin af því þetta er opinbert mál en ekki einkamál,“ segir eiginkonan sem kvaðst ekki tilbúin að koma fram undir nafni, það væri mikilvægt að hlífa börnum þeirra sem komi að málinu, hún vildi einungis að fólk hugsaði um hvort dómar af þessu tagi væru réttlátir.

Vísir ræddi við Júlíus Kristinn Magnússon, fulltrúa ákæruvaldsins í málinu. Hann sagði það aðeins á færi Ríkissaksóknara að áfrýja dómum á Héraðsdómsstigi. Þar sem málið hefði verið flutt af Lögreglustjóranum á Suðurnesjum hefði dómurinn verið sendur Ríkissaksóknara sem hefði tæpan mánuð til að ákveða hvort áfrýjað yrði eður ei.

Hinn dæmdi sagðist við uppkvaðningu dómsins una honum. Hann hlaut mikla líkamlega áverka við slysið og var lengi frá vinnu.

Heimild: Vísir.is



Myndir frá vettvangi slyssins. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi