Eigandinn fann bifreið sem stolið hafði verið
Lögreglunni í Keflavík var tilkynnt um að bifreið sem stolið var í Keflavík aðfararnótt 19. júní hefði fundist á bak við hús á Hafnargötunni, en það var eigandi bifreiðarinnar sem fann bílinn. Á sunnudagskvöld fundust munir úr hanskahólfi bifreiðarinnar í Mosfellsbæ. Við skoðun á bifreiðinni kom í ljós að frambretti hafði verið beyglað, hanskahólf verið skemmt og geislaspilara hafði verið stolið úr bifreiðinni.