Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 3. júní 2004 kl. 09:46

Eiður Smári og leikmaður Arsenal eftirlýstir í Keflavík

Lögreglan í Keflavík lýsir eftir Eið Smára Guðjónssen leikmanni Chelsea og Henry leikmanni Arsenal. Að minnsta kosti er lýst eftir keppnisbúningum þessara manna sem stolið var af þvottasnúru í Keflavík. Snúran var við hús á Faxabrautinni og þaðan var tekið ófrjálsri hendi keppnistreyja Chelsea merkt Gudjonsen nr. 22 og Arsenal-búningur merktur Henry nr. 14. Sá sem stal búningunum er vinsamlega beðinn um að koma þeim til skila eða vísa á þá hið fyrsta.
Bílakjarninn
Bílakjarninn