„Ég hafði í raun aldrei ímyndað mér að ræðan mín í Borgarnesi myndi valda svona miklu fjaðrafoki“

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar sagði á fundi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í kvöld að hún hefði enga löngun til þess að fara niður á það plan sem einkennt hefur umræðu dagsins varðandi Baug og harðar ásakanir í málinu. Ingibjörg sagði að hún upplifði sömu tilfinningu nú og árið 1994 þegar R-listinn stóð í kosningabaráttu í Reykjavíkurborg:„Þá þorði enginn að hafa uppi andmæli og það þorði enginn að tjá sig um það sem menn voru að gera. Og af hverju ekki? Jú, ef að menn tjáðu sig þá var hugsanlegt að þeir fengju ekki einhverjar stöður sem þeir ætluðu að sækja um og það var hugsanlegt að þeir misstu af einhverjum gæðum sem að þeim stæðu til boða eða gætu sóst eftir. Það var líka hugsanlegt að menn yrðu fyrir einhverjum geðþóttaákvörðunum af hálfu ríkisvaldsins og síðast en ekki síst að menn yrðu útmálaðir í opinberri umræðu ef þeir leyfðu sér að gagnrýna. Þannig má þetta ekki vera og það er þetta andrúmsloft í samfélaginu sem er ekki heilbrigt. Menn eru hálft í hvoru úthrópaðir ef þeir leyfa sér að standa upp og gagnrýna. Við hljótum að leggja áherslu á að skapa heilbrigðara andrúmsloft í íslensku samfélagi heldur en nú er.“
Ingibjörg sagði að hana hefði ekki grunað að ræða sem hún flutti fyrir stuttu í Borgarnesi hefði skapað jafn mikla umræðu og raun ber vitni: „Ég hafði í raun aldrei ímyndað mér að ræðan mín í Borgarnesi myndi valda svona miklu fjaðrafoki. Ég var þar að tala um ýmsar tegundir lýðræðis og var á mjög fræðilegum nótum.“
Ingibjörg sagði að allt hefði farið á annan endann þegar hún nefndi það andrúmsloft sem hún telur að sé í þjóðfélaginu í dag, að fólk sé hrætt við að hafa skoðanir af ótta við refsingu stjórnvalda. Ingibjörg segist ekki hafa verið að draga taum nokkurs fyrirtækis í ræðu sinni: „Ég var að taka umræðuna um þessi fyrirtæki og hvað fólk segir í kringum þau til marks um það andrúmsloft sem er í þjóðfélaginu í dag. Það var bara eins og við manninn mælt að það fór allt á annan endann. Ég hafði ekki ímyndað mér það þá að ég væri að lyfta loki af potti þar sem svona kraumaði undir. Ég hafði ekki grænan grun um það og mér fannst ekki gaman að horfa ofan í þennan pott,“ sagði Ingibjörg Sólrún á fundi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í kvöld og vildi ekki ræða málið frekar á fundinum.
VF-ljósmynd: Ingibjörg Sólrún í ræðustól á fundi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í kvöld.