Eftirlýstur með haglabyssu í bílaleigubíl
Lögreglunni á Suðurnesjum var í vikunni tilkynnt um að haglabyssa og skotfæri í tösku hefðu fundist í bílaleigubíl, sem verið hafði í útleigu. Starfsmaður bílaleigunnar hafði tekið bílinn af þeim sem hafði leigt hann, því sá síðarnefndi hafði ekki skilnað honum á tilsettum tíma né sinnt tilmælum þar að lútandi. Þá neitaði hann að greiða leiguna, en sagði tiltekið tryggingafélag eiga að greiða hana. Félagið hafði tekið bifreiðina á leigu fyrir manninn, en einungis í skamman tíma sem löngu var liðinn. Starfsmaður bílaleigunnar fór því með aukalykla og sótti bílinn þar sem af honum hafði frést á bílastæði.
Lögreglan tók haglabyssuna og skotfærin í sína vörslu. Sá sem neitaði að skila bílnum reyndist skráður fyrir byssunni, en var jafnframt eftirlýstur.