Eftirlýsti bakpokamaðurinn handtekinn í nótt
Í nótt veittu lögreglumenn á eftirliti aðila sem var göngu og var sá með bakpoka á bakinu. Lögreglumenn höfðu afskipti af honum og könnuðst við hann.
„Kviknaði strax grunur um að þetta væri aðilinn sem við erum búin að vera að leita að í tengslum við innbrotahrinu sem hefur verið í gangi hér á svæðinu. Aðilinn heimilaði lögreglu að skoða í bakpokann sem hann var með og var hann augljósega ekki í eigu mannsins,“ segir á fésbókarsíðu lögreglunnar á Suðurnesjum.
Einsktaklingurinn var handtekinn og viðurkenndi hann síðar að hann hafi verið að koma úr innbroti. Hann vísaði lögreglu skömmu síðar á hvar hann byggi og þar fannst mikið mikið magn af veiðidóti, verkfærum og öðrum munum sem taldir eru þýfi.
Annar maður var í íbúðinni og er hann einnig talinn tengjast innbrotunum. Hann var einnig handtekinn.
Lögreglan vinnur nú að því að skrá þessa muni og fara yfir allt saman. Aðilarnir verða yfirheyrðir síðar í dag.
„Við munum vera í sambandi við þá sem kært hafa þjófnaði undanfarið og fáum þá aðila til að koma og bera kennsl á hluti sem við haldlögðum í nótt“.
Nánari upplýsingar má sjá í færlsu lögreglunnar á fésbókinni.