Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Efna til kröfugöngu um íbúakosningu vegna kísilmálmverksmiðju Thorsil
Frá kynningarfundi um mengun í Helguvík í félagsheimili Mána á Mánagrund nýlega.
Laugardagur 9. maí 2015 kl. 07:02

Efna til kröfugöngu um íbúakosningu vegna kísilmálmverksmiðju Thorsil

 
Íbúahópur gegn frekari stóriðju í Helguvík ásamt Hestamannafélaginu Mána hvetur bæjarbúa til þátttöku í kröfugöngu þriðjudaginn 12. maí næstkomandi. Tilgangur göngunnar er að skora á bæjarstjórn Reykjanesbæjar að efna til íbúakosningar um kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík.
 
Í tilkynningu sem birst hefur á Facebook segir einnig: „Hópurinn telur að aldrei muni nást sátt meðal íbúa Reykjanesbæjar um þetta stóra mál öðruvísi en með íbúakosningu. Einungis þannig muni fást lýðræðisleg niðurstaða, hver sem hún verður. Nú reynir á framkvæmd þess sem talað var um fyrir kosningar um lýðræðisleg vinnubrögð og meira samráð við íbúana.
 
Gangan hefst kl. 17:30 við smábátahöfnina og þaðan munu hestar og menn ganga upp Hafnargötuna, inn að ráðhúsinu við Tjarnargötu, þar sem hópurinn mun afhenda oddvitum bæjarstjórnar formlega áskorun þessa efnis.
 
Við hvetjum sem flesta til að mæta og hvetja bæjarstjórn til að virkja lýðræðið!“, segir að lokum í tilkynningunni.
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024