EBÍ greiðir tæpar tíu milljónir til Reykjanesbæjar
Stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands hefur ákveðið á grundvelli samþykkta fulltrúaráðs félagsins að greiða aðildarsveitarfélögum sínum samtals 140 milljónir króna í ágóðahlut í ár.Reykjanesbær fær tæpar tíu milljónir í sinn hlut og önnur sveitarfélög á Suðurnesjum fá samtals greiddar tæpar átta milljónir króna.Greiðslan er í samræmi við eignaraðild þeirra að Sameignarsjóði EBÍ. Í samræmi við samþykktir félagsins mælast stjórn og fulltrúaráð EBÍ til þess við sveitarfélögin að þau verji framlaginu meðal annars til forvarna, greiðslu iðgjalda af tryggingum sveitarstjórna og brunavarna í sveitarfélaginu.Ágóðahlutur aðildarsveitarfélaganna frá EBÍ hefur orðið til þess að nokkur sveitarfélög munu endurnýja slökkvibifreiðar sínar á næstunni.EBÍ hefur um langt skeið greitt aðildarsveitarfélögum framlag til ágóðahlutar af starfsemi sinni. Slíkar greiðslur hófust árið 1934 með samningi Brunabótafélags Íslands við sveitarfélög um fjármögnun slökkvitækja. Árið 1955 var gefin út sérstök reglugerð um þessar greiðslur, og aftur árið 1985. Á síðustu þremur árum hafa aðildarsveitarfélögin fengið samtals um 380 milljónir króna greiddar í ágóðahlut. Frá upphafi hefur EBÍ því greitt hundruðir milljóna króna til aðildarsveitarfélaga, miðað við verðlag í dag.