E.coli gerlar í drykkjarvatni í Vogum
Bæjarbúum er ráðlagt að sjóða allt drykkjarvatn
Í reglubundnu eftirliti Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja með gæðum neysluvatns þann 1. september sl. reyndist sýni sem tekið var af neysluvatni í Stóru-Vogaskóla mengað af E. coli gerlum. Niðurstöður þessa efnis lágu fyrir nú í morgun. Ástæður mengunarinnar liggja ekki fyrir, en þó má leiða að því líkur að yfirborðsvatn hafi borist í grunnvatn í þeim miklu rigningum sem voru um síðustu helgi. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja mun ráðast í ítarlegar rannsóknir á neysluvatni í bæjarfélaginu næstu daga og upplýsa um niðurstöður um leið og þær liggja fyrir. Frá þessu er greint á vef Matvælastofnunar.
Viðbrögð Heilbrigðiseftirlitsins við mengun af þessu tagi eru samkvæmt fyrirmælum í reglugerð nr. 536/2001 um neysluvatn og til þeirra er gripið að höfðu samráði við Sveitarfélagið Voga, eiganda vatnsveitunnar í Vogum, HS Veitur og rekstraraðila vatnsbóla Vogamanna.