Mánudagur 14. október 2002 kl. 10:17
Dýpkun næsta verkefni í hafnarmálum Grindvíkur

Framkvæmdum við nýju brimvarnargarðana í Grindavík er lokið. Garðarnir voru formlega tekinn í notkun við athöfn í Saltfisksetrinu nýverið að viðstöddum samgönguráðherra, þingmönnum og fleiri gestum. Vinna við brimvarnargarðana hófst um miðjan ágúst á síðasta ári og gekk framkvæmdin vel en verkinu lauk um mánuði á undan áætlun.Suðurverk hf var lægstbjóðandi í verkið og lagði garðana. Siglingastofnun var ráðgjafi og hönnuður en Verkfræðistofa Suðurnesja sá um eftirlit af hálfu verkkaupa. Brimvarnararðarnir eru 285 metrar sá vestari og 313 metrar sá austari, að lengd. Efnismagn í görðunum er um 170 þúsund rúmmetrar. Mesta dýpi er um 6 metrar.
Grjótið í garðana var sprengt úr námu vestan bæjarins. Stærstu grjótflokkarnir allt að 30 tonnum, keyrt að og raðað. Tækin sem unnu vinnuna voru einnig í stærri kantinum 85 tonna gröfur og 35 tonna trukkar.