Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Dveljið innandyra meðan veðrið geysar og fylgist með verðurfréttum og tilkynningum í fjölmiðlum
Laugardagur 4. nóvember 2006 kl. 19:19

Dveljið innandyra meðan veðrið geysar og fylgist með verðurfréttum og tilkynningum í fjölmiðlum

Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur sent frá sér eftirfarandi leiðbeiningar til almennings til að koma í veg fyrir tjón af völdum veðursins:

Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt gæta þess að festa þá vel og tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra.

Við flest íbúðarhús er um að ræða hluti í garði og á svölum, svo sem garðhúsgögn, grill, hitara og trampólín. Fari þessir hlutir af stað er hætta á að þeir lendi á rúðum og brjóti þær eða skemmi bifreiðar.
Fullvissið ykkur öllum gluggum og dyrum sé vel lokað. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og hringja eftir aðstoð björgunarsveita í síma Neyðarlínunnar -112.

Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og annað. Húsbyggendur ættu að sýna sérstaka varkárni í þeim efnum.

Tryggið að hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og dráttarkerrur séu í skjóli við ríkjandi vindátt og að kyrfilega sé gengið frá þeim.


Dveljið innandyra meðan veðrið geysar og fylgist með verðurfréttum og tilkynningum í fjölmiðlum.

Séu varúðarráðstafanir gerðar aukast líkur á að þessi djúpa haustlægð fari yfir landið án þess að skapa teljandi vandkvæði.


Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu vegna óveðursins í nótt og á morgun. Sveitirnar brýna fyrir fólki að koma öllu lauslegu í hús eða binda niður það sem er utan dyra. Vindhraðinn ætti að verða allt að 50 metrar á sekúndu í snörpustu hviðunum á vestan- og norðvestanverðu landinu í fyrramálið.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024