Bygg
Bygg

Fréttir

Dvalarleyfi af mannúðarástæðum í höfn
Föstudagur 13. apríl 2012 kl. 09:35

Dvalarleyfi af mannúðarástæðum í höfn

Priyanka Thapa, Au Pair í Vogum á Vatnsleysuströnd og nemandi við Háskóla Íslands, hefur fengið dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum. Málefni hennar hafa verið talsvert í fréttum hér á landi síðustu ár, vegna baráttu hennar fyrir réttindum sínum. Priyanka vakti töluverða athygli þegar hún var við nám í Keili á Ásbrú. Þá komust málefni hennar í hámæli.

Á fésbókarsíðu til stuðnings málstað hennar segir:

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Dvalarleyfi af mannúðarástæðum er í höfn !!

Draumar rætast eftir allt saman. Ef maður reynir sitt besta, er jákvæður og brosir framan í lífið þrátt fyrir erfiðleika sem verða á vegi manns þá getur maður sigrast á ótrúlegustu hlutum. Í dag er ég svo hamingjusöm. Eftir allt það erfiðið sem allir í kringum mig hafa lagt á sig til að láta mína drauma rætast er ég ævinlega þakklát. Takk kærlega fyrir að halda í hendina á mér og veita mér þennan mikla stuðning í gegnum þessa erfiðleika. Ef það væri ekki fyrir ykkur öll þá væri ég löngu búin að gefa upp alla von svo ég vil segja að þessi sigur er alveg eins ykkar eins og hann er minn. Það hefur skinið sól í hjarta mínu í allan dag og ég hef mikla og góða von um mína framtíð loksins eftir þessa gríðarlega erfiðu bið s.l. eitt og hálft ár, stanslaust í von og ótta um hvert mitt líf er að fara.

Mér gengur vel í skólanum, ég er umkringd góðum vinum og hef bjarta von um framtíðina. Um daginn sótti ég um ríkisborgara rétt til Alsherjarnefndar sem verður unnið úr núna í haust. Mín heitasta ósk er að verða hjálpsamur, vel menntaður og sterkur íslendingur sem lifandi góðu lífi í sátt vil allt og alla.

Til hamingju.

Priyanka