Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

DV kokgleypir aprílgabb Víkurfrétta
Miðvikudagur 2. apríl 2008 kl. 08:25

DV kokgleypir aprílgabb Víkurfrétta

Það verður hlegið að einhverjum á ritstjórn DV í dag, því blaðið kokgleypti annað af tveimur „aprílgöbbum“ Víkurfrétta sem fjallaði um að umhverfisráðherra hefði fellt úrskurði álverinu í Helguvík í vil og skrifað yrði undir samninga um línulagnir síðdegis í gær, 1. apríl, þar sem almenningi var boðið að vera viðstaddur. Hefðu verið mikil tímamót á Suðurnesjum ef satt væri, en fréttin var hreinn uppspuni frá upphafi til enda.

DV sá hins vegar ástæðu til að birta frétt um málið á einni af fremstu fréttasíðum blaðsins í dag. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem DV gleypir við hrekkjum Víkurfrétta þann 1. apríl. Árið 2005 sagði DV frá nýjung Sparisjóðsins í Keflavík, þar sem viðskiptavinir spiluðu bingó eftir nýju númerakerfi, sem þá hafði verið sett upp í afgreiðslu Sparisjóðsins í Keflavík. Víkurfréttir höfðu gert 1. aprílfrétt um málið, en daginn eftir kom frétt um bingóið í DV, eins og um dagsanna frétt væri að ræða.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024