Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Dúa II RE sökk í Grindavíkurhöfn
Dúa II RE 400 liggur nú á botni Grindavíkurhafnar eftir að báturinn sökk í hádeginu. VF-myndir: Jón Steinar Sæmundsson
Jón Steinar Sæmundsson
Jón Steinar Sæmundsson skrifar
mánudaginn 30. ágúst 2021 kl. 21:49

Dúa II RE sökk í Grindavíkurhöfn

Dúa II sökk í Grindavíkurhöfn um hádegisbilið í dag þar sem hún lá utan á nöfnu sinni Dúu RE 404 eins og hún hefur gert undanfarin ár og það í hálfgerðu reiðuleysi. Greint er frá þessu á síðunni Báta og bryggjubrölt á fésbókinni.

Kafarar fóru niður að bátnum í dag og lokuðu fyrir op til að koma í veg fyrir mengun og einnig var sett mengunargirðing umhverfis hann.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Dúa II var smíðuð úr eik í Halmstad í Svíþjóð árið 1954 og mældist 39 brl. að stærð.

Báturinn hét upphaflega Sigurfari SF 58 frá Hornafirði, síðar Farsæll SH 30 og Örninn KE 127 og svo Kári GK 146, nafn sem hann bar í tæp 40 ár.

Vorið 2005 var hann seldur til Dalvíkur þar sem hann fékk nafnið Aggi Afi EA 399. Síðar hét hann Aníta KE 399 og svo Dúa II RE 400.