Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Drykkjarvatn í Garði orðið hreint á ný
Þriðjudagur 15. nóvember 2011 kl. 13:08

Drykkjarvatn í Garði orðið hreint á ný


Í gær voru tekin sýni víðsvegar í dreifikerfi Vatnsveitunnar í Garði. Niðurstöður liggja nú fyrir og hvergi varð vart við saurmengun í neysluvatni í bæjarfélaginu.

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja mun fylgjast grannt með neysluvatni í Garði á næstu vikum og miðla upplýsingum til íbúa eftir því sem tilefni er til.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja sendi frá sér tilkynningu í gær sem var svohljóðandi:

„Í reglubundnu eftirliti með gæðum neysluvatns þann 9. nóvember sl. reyndist sýni sem tekið var af neysluvatni í vatnsbóli sem er við Heiðarbraut mengað af E. coli bakteríum. Niðurstöður þessa efnis lágu fyrir nú í morgun og var vatnsbólinu lokað þegar í stað. Samhliða þessu var dreifikerfið hreinsað. / Embættið mun ráðast í ítarlegar rannsóknir á neysluvatni í bæjarfélaginu í dag og munu rannsóknarniðurstöður liggja fyrir þegar líður á vikuna. / HS Veitur sem eiga og reka Vatnsbólið við Heiðarbraut tóku fyrir um 2 árum ákvörðun um að leggja af umrætt vatnsból. Endanleg lokun vatnsbólsins hefur hins vegar tafist þar sem ekki hefur verið hægt að ljúka nauðsynlegum úrbótum á dreifikerfi. Samkvæmt upplýsingum embættisins mun það vera vegna eignarhalds á landi þar sem leggja þarf nýja stofnæð.“