Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Drusluganga í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 16. júní 2011 kl. 13:02

Drusluganga í Reykjanesbæ

Ákveðið hefur verið að halda Druslugöngur í Reykjanesbæ þann 23. júlí, sama dag og Druslugangan verður farin í Reykjavík. Líklegt þykir að fleiri Druslugöngur verði farnar á landinu þennan dag. Þar er ætlunin að hittast hjá Nettó, ganga niður Hafnargötuna og enda í skrúðgarðinum. Nánari dagskrá hefur ekki verið útfærð.

Yfirlýst markmið göngunnar er að uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand brotaþola í umræðu um kynferðisofbeldi. Þannig vilja skipuleggjendur göngunnar vekja athygli á því að það eru gerendur sem bera ábyrgð á kynferðisofbeldi, en ekki þolendur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fyrirmynd Druslugöngunnar er hin svonefnda Slut walk sem fyrst var farin í Toronto í Kanada fyrr á þessu ári. Tilefni göngunnar voru umdeild ummæli lögreglumanns í Toronto í Kanada sem sagði að konur þyrftu að forðast að klæða sig eins og druslur til að verða ekki nauðgað.