Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Drógu vélarvana bát til Njarðvíkur
    Myndin var tekin í útkallinu síðdegis í gær. Mynd: Halli H.
  • Drógu vélarvana bát til Njarðvíkur
    Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein.
Föstudagur 29. janúar 2016 kl. 09:27

Drógu vélarvana bát til Njarðvíkur

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði var kallað út síðdegis í gær þegar tilkynning barst um vélarvana bát við innsiglinguna í Sandgerðishöfn. Tveir skipverjar eru um borð. Bjargir voru því kallaðar út á fyrsta forgangi en fljótlega kom í ljós að bilaði báturinn var um sjómílu utar og því ekki eins mikil hætta á ferðum og fyrst var talið.

Nærstaddur bátur var fyrstur á staðinn og reyndi að koma taug á milli en tókst ekki. Um hálfri klukkustund eftir að útkallið barst var björgunarskipið komið með vélarvana bátinn í tog og sigldi með hann til hafnar í Njarðvík.

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024