Fréttir

Drífa fékk hvatningarverðlaun kennara
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 2. júní 2026 kl. 12:13

Drífa fékk hvatningarverðlaun kennara

Drífa Hjördís Thorstensen, kennari í Háaleitisskóla hlaut VILJA - Hvatningarverðlauna kennara árið 2026 en þau voru afhent á Nýsköpunarkeppni grunnskólanna sem var um síðustu helgi.

Nýsköpunarstarfið í Háaleitisskóli á Ásbrú hafði djúpstæð áhrif á dómnefndina. Það sem vó þyngst í ákvörðun nefndarinnar var sú kerfisbundna og metnaðarfulla vinna sem átt hefur sér stað við að gera nýsköpun og tæknimennt að fastri og jafnrétthárri verkgrein fyrir alla nemendur skólans.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Sérstaklega var hrifning með það hvernig Drífa hefur nýtt nýsköpunina sem alþjóðlegt tungumál sköpunar í fjölmenningarlegu umhverfi skólans.

„Með því að brjóta niður tungumálamúra og virkja fjölbreyttan nemendahóp á jafnréttisgrundvelli, þar sem allir fá tækifæri til að sýna sínar sterku hliðar, hafið þið skapað sanna fyrirmynd sem eftirtektarvert er fyrir skólasamfélagið allt á landsvísu,“ segir í tilkynningu um verðlaunin.

Bílakjarninn
Bílakjarninn