Drengur á hlaupahjóli fyrir bíl
Ungur drengur varð fyrir bifreið í Sandgerði í fyrradag. Drengurinn var á hlaupahjóli og mætti bifreið. Hann náði ekki að stöðva hjólið í tæka tíð og hafnaði framan á bifreiðinni, sem ökumaður náði heldur ekki að stöðva. Drengurinn hlaut skrámur og kenndi eymsla. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.