Dreifikerfi HS Veitna í Grindavík víða laskað
Starfsfólk HS Veitna vann í fyrrinótt og frameftir degi í gær við að halda uppi rafmagni og hita á húsum í Grindavík en ljóst er að veitukerfin eru víða löskuð sökum bæði jarðskjálfta og jarðgliðnunar. Starfsfólki HS Veitna var gert að rýma bæinn seinnipartinn í gær og þá var staðan sú að hiti var á húsum í Grindavík að mestu en rafmagn farið af á einstaka stöðum.
Frá þessu er greint á vef HS Veitna í dag. Nú er búið að taka stöðuna úr stjórnkerfunum og samkvæmt þeim er staðan þessi:
Heitt vatn
Hvað heita vatnið varðar er heitavatnslaust á skyggða svæðinu á meðfylgjandi mynd. Líklegt er að talsvert sé af lekum víðar í kerfinu. Ekki hefur verið unnt að vinna bilanagreiningu á vettvangi vegna neyðarstigs og rýmingar. Sérstaklega er varað við hættu sem skapast af heitu vatni á yfirborði eða í skurðum.
Rafmagn
Hvað rafmagnið varðar er nú rafmagnslaust á þeim stöðum sem eru rauðmerktir á meðfylgjandi kortum. Líklegt er að rafmagnsleysi sé víðar í kerfinu vegna bilana í götuskápum og lágspennustrengjum sem liggja í húsagötum. Ekki hefur verið unnt að bilanagreina á vettvangi vegna neyðarstigs og rýmingar. Sérstaklega er varað við hættu sem skapast vegna laskaðra raforkumannvirkja og strengja.
HS Veitur hafa öryggi starfsfólks ávallt í fyrirrúmi og vinnur fyrirtækið náið með almannavörnum að því að meta hvort og þá hvenær mögulegt verði að ráðast í viðgerðir. Það verður að teljast ólíklegt eins og ástandið er að það gerist í bráð, enda kalla slíkar viðgerðir á talsvert af mannskap og tækjum og geta tekið langan tíma.