Dregur úr éljum í fyrramálið
Suðvestan 10-18 m/s og él, en hægari um tíma síðdegis við Faxaflóa. Lægir og dregur úr éljum í fyrramálið og hiti um eða yfir frostmarki. Sunnan 5-10 seint á morgun og hlýnar.?
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestan 8-15 m/s og él. Hiti 0 til 3 stig. Lægir og dregur úr éljum í fyrramálið, en sunnan 5-10 undir kvöld á morgun.?
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:?Snýst í suðvestan 10-18 með éljum þegar kemur fram á morguninn, en suðlægari austanlands og rigning fram yfir hádegi, einkum suðaustanlands. Léttir til norðaustanlands síðdegis. Kólnandi veður, hiti í kringum frostmark seinnipartinn. ?
Á þriðjudag:?Suðvestan- og vestan 10-18 með éljagangi S- og V-lands. Hiti nálægt frostmarki. ?
Á miðvikudag:?Hægt minnkandi vestanátt og dregur úr éljum. Hiti breytist lítið. ?
Á fimmtudag:?Suðvestlæg átt með vætu, en úrkomulítið NA-lands. Hlýnar heldur í bili. ?
Á föstudag:?Útlit fyfir vestlæga átt með éljum og kólnar aftur.?