Dræm mæting á Ljósanæturfund
Menningarráðs Reykjanesbæjar hélt í gær íbúafund vegna Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar, þar sem óskað var eftir umræðu og jafnvel tillögum um framkvæmd Ljósanætur 2016. Skipt var upp í hópa og rætt um hvernig hægt væri þátttöku íbúa sem gerendur viðburða, kostendur viðburða og njótendur viðburða. Mætingu á fundinn var fremur dræm þó svo að ýmsar góðar hugmyndir hafi verið ræddar.
Í umræðu hópanna kom fram að sú breyting sem varð á hátíðinni í fyrra þar sem föstudagshátíðarhöld voru minnkuð og kynningarkostnaður lækkaður mæltist vel fyrir. Ýmsar hugmyndir voru ræddar sem menningarráð mun fara betur yfir ásamt framkvæmdaráði Ljósanætur með það í huga að sem flestar af þeim góðu og uppbyggilegu geti komist til framkvæmda miðað við það fjármagn og þann mannskap sem stendur til boða. Ráðið lagði til á fundi sínum að setningarathöfn Ljósanætur verði endurskoðuð í samvinnu við fræðsluyfirvöld.