Fréttir

Dottaði undir stýri og vaknaði á umferðareyju
Sunnudagur 18. mars 2018 kl. 07:00

Dottaði undir stýri og vaknaði á umferðareyju

Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni en engin meiri háttar slys á fólki. Ökumaður sem var á ferð á Reykjanesbraut við Fitjar í Njarðvík dottaði undir stýri  og vaknaði upp við að hann var að aka upp á umferðareyju. Hann reyndi að koma bifreið sinni á rétta braut en ók þá utan í umferðarskilti. Bifreiðin var fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið.

Þá varð nokkuð harður árekstur á Njarðarbraut þegar bifreið var ekið aftan á aðra. Ökumaður síðarnefndu bifreiðarinnarvar fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Public deli
Public deli