Dósaþjófar með barnakerru gómaðir
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni upp á tveimur einstaklingum sem voru staðnir að því að stela dósum úr bílakerru í Njarðvík nýverið. Höfðu þeir notað barnakerru til að ferja dósirnar og farið nokkrar ferðir. Þegar þeir fundust voru þeir að gramsa í ruslatunnum. 
Skömmu síðar barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir og reyndust þar á ferðinni sömu menn, farnir að gramsa aftur í ruslatunnum. 
Lögreglumenn veittu þeim tiltal og var þeim gert að láta af þessari hegðun sinni. Virtust þeir skilja það.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				