HSS
HSS

Fréttir

Djammari.is lokar á Dómsmálaráðuneytið
Fimmtudagur 23. janúar 2003 kl. 14:27

Djammari.is lokar á Dómsmálaráðuneytið

Lokað hefur verið á aðgang netþjóna Dómsmálaráðuneytisins að vefsíðunni Djammari.is og geta starfsmenn stofnana ráðuneytisins ekki skoðað síðuna. Styrmir Barkarson einn aðstandenda vefsíðunnar Djammari.is sagði í samtali við Víkurfréttir að Lögreglan í Keflavík hafi notað síðuna til að skoða hvort fólk undir aldri væri að skemmta sér á skemmtistöðum í Keflavík:„Sýslumaðurinn og Lögreglan í Keflavík hafa verið að misnota síðuna okkar. Við eigum myndirnar sem eru á síðunni og þeir mega ekki nota þær, enda er tekið fram á síðunni að það megi aðeins nota þær með skriflegu leyfi frá okkur.“
Styrmir segir að þeir séu að mótmæla vinnubrögðum Lögreglunnar með því að hindra aðgang allra netþjóna Dómsmálaráðuneytisins: „Við höfum allan rétt til að ákveða það hverjir mega skoða síðuna hjá okkur og við erum einfaldlega að mótmæla. Okkur finnast þetta vera lúaleg vinnubrögð hjá lögreglunni, því ef þeim væri verulega annt um það að krakkar undir aldri væru ekki á skemmtistöðunum, þá væru lögreglumenn á ferðinni á skemmtistöðunum til að taka á þeim málum.“

Karl Hermannsson yfirlögregluþjónn í Keflavík sagði í samtali við Víkurfréttir að lögreglunni hefði borist vísbendingar um að á vefsíðunni væru myndir af krökkum undir aldri á skemmtistöðum í Keflavík: „Við notuðum myndir af síðunni sem rannsóknargögn og kölluðum krakka til yfirheyrslu vegna mynda af síðunni,“ sagði Karl og staðfesti að kærur væru í undirbúningi vegna þessara mála.

Ljósmynd: Þessa skjámynd fá starfsmenn stofnana dómsmálaráðuneytisins uppá skjáinn þegar þeir reyna að fara á djammari.is.
Bílakjarninn
Bílakjarninn