Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Diddú gladdi gesti
Þriðjudagur 17. janúar 2006 kl. 10:29

Diddú gladdi gesti

Söngkonan landsþekkta Sigrún Hjálmtýsdóttir, eða Diddú, gladdi augu og eyru gesta á Nýárstónleikum Tónlistafélags Reykjanesbæjar í Listasafni Reykjanesbæjar í Duus-húsum á sunnudag.

Hún var þar komin ásamt Salonsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar, en á efnisskrá voru ljúfir söngvar, valsar og polkar ættaðir frá Vín. M.a. voru flutt verk eftir Johann Strauss og fleiri góðkunna höfunda og skilaði Diddú sínum lögum af alkunnri snilld. Þá var valinn maður í hverju rúmi í hljómsveitinni sem gerði tónleikana að frábærri skemmtun. Á myndinni sést Diddú túlka Anninu úr óperettunni Nótt í Feneyjum eftir Strauss.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024