Bygg
Bygg

Fréttir

Detox Jónínu Ben. opnar í Reykjanesbæ
Föstudagur 3. apríl 2009 kl. 17:21

Detox Jónínu Ben. opnar í Reykjanesbæ



Detox ehf., Heilsufélag Reykjanes og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar (Kadeco) hafa gert með sér samstarfssamning um uppbyggingu á detoxmeðferðarstöð á Reykjanesi.

Aðstaðan verður á Lindarbraut í Reykjanesbæ, í nýstofnuðu heilsuþorpi Ásbrúar. Þetta samkomulag markar upphaf að heilsuþorpi sem mun rísa á svæðinu en fjölmargir aðilar hafa þegar sýnt mikinn áhuga á því að taka þátt í uppbyggingu byggðri á slíkri hugmyndafræði.

Aðilar samningsins  munu vinna að frekari þróun og uppbyggingu verkefnisins á svæðinu. Heilsufélag Reykjaness leggur til umgjörð verkefnisins í samræmi við markmið félagsins auk þess að sjá um samþættingu við aðra slíka starfsemi sem byggð verður upp á svæðinu.

Detox meðferðarstöðin verður opin allan ársins hring, allan sólarhringinn. Fyrsta meðferðin hefst 23. maí og í framhaldi af því hefjast meðferðir vikulega. Þegar er byrjað að taka við bókunum í síma 618-1900 eða í gegnum netfangið [email protected].

Jónína Benediktsdóttir hefur mikla reynslu og þekkingu á þeirri aðferðafræði sem notuð er í meðferðinni og hefur undanfarin 3 ár leitt rúmlega 2.500 Íslendinga í gegnum detox meðferðina í Póllandi með mjög góðum  árangri. Nú hefur Jónína í samstarfi við Sigrúnu Kjartansdóttur ákveðið að víkka út starfsemina og bjóða einnig upp á meðferðina á Íslandi.  Höfuðstöðvarnar  og aðal meðferðarstöðin verður á Reykjanesi en samhliða verður einnig boðið upp á detox meðferðir á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit (yfir vetrartímann) og á Hótel ELF í Póllandi.  

Heilsufélag Reykjaness er stofnað á grunni þeirra tækifæra sem Reykjanesið býr yfir á sviði heilsu og vellíðunar. Markmið félagsins eru fólgin í markaðssetningu Íslands sem lands hreysti, fegurðar og heilsu. Að heilsufélaginu standa sveitafélögin Garður, Sandgerði, Reykjanesbær og Vogar auk Bláa Lónsins, Keilis og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, hefur það hlutverk að leiða umbreytingu og þróun fyrrum varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli, sem heitir í dag Ásbrú til borgaralegra nota. Í tengslum við megin stefnumörkun félagsins er ráðgert að byggja upp á svæðinu m.a. öflugan heilsuklasa.

Mynd: Frá undirritun samninga í dag. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn