Fréttir

Delta flýgur breiðþotum milli Keflavíkur og Bandaríkjanna
Sunnudagur 31. mars 2024 kl. 10:30

Delta flýgur breiðþotum milli Keflavíkur og Bandaríkjanna

Fyrsta þota Delta Air Lines á þessari sumarvertíð lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun. Vélin kom frá New York og er þetta þrettánda árið sem Delta flýgur hingað frá Bandaríkjunum. Delta hefur aukið sætaframboðið frá New York á þessu ári með því að taka í notkun Boeing 767 breiðþotu á leiðinni í stað Boeing 757.

Í maí hefst flug Delta frá Detroit og í júní frá Minneapolis/St Paul líkt og áður. Flogið verður daglega til New York og Detroit og fimm sinnum í viku til Minneapolis/St Paul.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Yfir háannatímann verða 7.600 sæti í boði í 38 ferðum hverri viku með vélum Delta milli Íslands og Bandaríkjanna.

„Ísland er einstaklega vinsæll áfangastaður meðal viðskiptavina Delta og þess vegna aukum við sætaframboðið. Delta hefur flutt rúmlega 950 þúsund farþega í fluginu til Íslands frá því við hófum starfsemina árið 2011. Okkur finnst alltaf að sumarvertíðin hjá Delta sé byrjuð með fyrstu ferð ársins frá New York til Íslands,“ segir Matteo Curcio, yfirmaður Delta fyrir Evrópu, Afríku, Miðausturlönd og Indland. 

Meirihluti farþega Delta í Íslandsfluginu eru ferðamenn frá Norður-Ameríku. Um 70% þessara ferðamanna koma með tengiflugi Delta til borganna þriggja í Bandaríkjunum til að ferðast áfram til Íslands. Dvalartími þeirra sem koma með Delta er að meðaltali 5-7 dagar.