Deilt um verðmat
Samningur Reykjanesbæjar og Geysis Green Energy um kaup og sölu í HS Orku og HS Veitum var samþykktur í gær með atkvæðum sjálfstæðismanna á átakafundi í bæjarstjórn sem dróst fram á kvöld. Um var að ræða aukafund þar sem þetta eina mál var á dagskrá.
A-listinn, sem greiddi atkvæði á móti samningnum, lagi fram tillögu um að málinu yrði frestað á meðan fram færi sjálfstætt mat á virði félaganna hvors um sig svo ekki léki vafi á því að rétt væri að málum staðið. Deilt hefur verið um þær matsgerðir sem fyrir liggja annars vegar frá Capacent og hins vegar frá Arctica Finance. Þeim ber ekki saman og segir A-listinn Reykjanesbæ verða af 5 milljörðum í þessum viðskiptum vegna þess. Hart var tekist á um þessar matsgerðir á fundinum í gær.
Sjálfstæðismenn í meirihlutanum felldu tillögu A-listans um að fresta málinu. Í bókun þeirra segir að sjö verðtilvísanir liggi til grundvallar verðmati því sem Reykjanesesbær byggi á við þessi viðskipti. Verðmatið á HS, sem stuðst sé við, sé það hæsta í þessum viðmiðunum.
Nánar verður greint frá efni bæjarstjórnarfundarins í dag hér á vf.is.