Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Davor Suker heimsótti Grindavík
Föstudagur 15. nóvember 2013 kl. 09:08

Davor Suker heimsótti Grindavík

Davor Suker, forseti knattspyrnusambands Króatíu, heimsótti Grindavík í gær í fylgd góðvinar síns Milans Stefáns Jankovic, þjálfara Grindavíkur. :eir spiluðu saman í fjögur ár með Osijek á sínum tíma í Júgóslavínu og hafa haldið sambandi síðan þá. Suker var einn fremsti knattspyrnumaður Króata á sínum tíma en hann varð markakóngur á HM 1998. Suker er að sjálfsögðu staddur hér á landi vegna stórleiks Íslands og Króatíu í dag.

Suker heilsaði upp á stórn knattspyrnudeildar UMFG og skoðaði íþróttamannvirkin og heilsaði upp á iðkendur yngri flokkanna. Hann skellti sér m.a. á vítapunktinn og rifjaði upp gamla takta með sínum frábæra vinstri fæti. Suker var afar hrifinn af knattspyrnuhúsinu. Suker kom færandi hendi en hann gaf bolta frá króatíska knattspyrnusambandiniu fyrir yngri flokkana. Hann var svo leystur út með gjöfum, m.a. lýsi og saltfiski.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Milan Stefán er frá Króatíu en hann er með íslenskan ríkisborgararétt og mun styðja Ísland í umspilsleikjunum.

Suker skellti sér á vítapunktinn og lét ungan markvörðinn verja frá sér í fyrra skiptið en seinni spyrnan var óverjandi!

Félagarnir Milan Stefán Jankovic og Davor Suker í góðum félagsskap iðkenda í yngri flokkunum og Jónasi Þórhallssyni formanni knattspyrnudeildar.