Danskir vefmiðlar fjalla um atvikið á Traffic í Keflavík
Danskir vefmiðlar hafa allir fjallað um atvikið á skemmtistað í Keflavík í nótt þegar 33 ára gamall danskur hermaður lést í kjölfar þess að hafa verið sleginn af einum gesta staðarins.
Danski hermaðurinn, sem lést á skemmtistað í Keflavík í nótt, var sérfræðingur í flugi yfir Norður-Atlantshaf. Að sögn dönsku fréttastofunnar Ritzau kom hermaðurinn, sem hét Flemming Tolstrup og var 33 ára, ásamt sex öðrum hermönnum til Íslands í gær í flugvél af gerðinni Challenger á vegum danska flughersins.
Tilgangurinn með ferðinni var að æfa lendingar á mismunandi flugvöllum á Íslandi, Kanada og Grænlandi.Ritzau segir, að flugherinn hafi áður notað flugvélar af gerðinni Gulfstream til eftirlitsflugs, m.a. með fiskveiðum en verið sé að skipta um flugvélartegund. Tolstrup hafði verið siglingafræðingur á Gulfstream flugvélum og var með í ferðinni til Íslands sem sérfræðingur.
Félagar Tolstrups fengu áfallahjálp frá presti varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þeir fara aftur til Danmerkur þegar yfirheyrslum er lokið. Morgunblaðið hefur þetta eftir Ritzau.
Lögreglan í Keflavík fékk tilkynningu um það klukkan 4:13 í nótt að danskur hermaður væri slasaður á veitingastað í Keflavík. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann lést skömmu síðar.Vitni sögðu að Daninn hefði verið sleginn af einum gesta staðarins framan við bar veitingastaðarins. Hinn grunaði mun hafa slegið hinn látna einu höggi á höfuðið og farið síðan rakleitt út af veitingastaðnum. Lögreglan handtók þann grunaða og er hann í haldi lögreglunnar. Hann er 29 ára gamall breskur ríkisborgari sem er búsettur hér á landi. Að sögn Ritzau er maðurinn Skoti. Hann var handtekinn á heimili sínu og segir lögregla að hann hafi þá virst talsvert mikið ölvaður.
Myndir: Vefsíður bt.dk, politiken.dk og af vef stærstu myndveitu skandinavíu, polfoto.dk.